Ársuppgjör NEFCO fyrir árið 2008 sýnir jákvæða niðurstöðu fyrir umhverfið

Ársuppgjör Norræna Umhverfisfjármögnunarfélagsins NEFCO fyrir starfsemi þess árið 2008 sýnir ágætan árangur, þrátt fyrir alþjóðlegu fjármálakreppuna. Skýrsla félagsins yfir stöðu umhverfismála sýnir að þau verkefni sem NEFCO fjármagnaði í fyrra, minnkuðu álíka mikið umhverfisskaðlega losun í andrúmsloftið eins og árið 2007.

Þau  64 verkefni sem samþykkt voru árið 2008 eru til dæmis fjármögnun endurnýjanlegrar orku, hækkun á nýtingarhlutfalli orku, sjálfbær landbúnaður og fjármögnun á endurvinnslu úrgangs ásamt hreinsun á frárennslisvatni.  Hagnaður félagsins á árinu 2008 var 191.878,63 Evrur eða um 28,8 milljónir króna.

- Það er ánægjulegt að okkur hafi tekist að fjölga verkefnun, þrátt fyrir efnahagssamdráttinn í heiminum. Það sýnir að það er mikil eftirspurn eftir alþjóðlegum fjármögnunarstofnunum, sem eru reiðubúnar að fjármagna þörf umhverfisverkefni í Austur-Evrópu, segir framkvæmdastjóri NEFCO, Magnus Rystedt.

- Umhverfisskýrslan okkar sýnir líka að margar af okkar fyrri fjárfestingum eru farnar að bera ávöxt. Til dæmis þátttaka NEFCO í fjármögnun á frárennslishreinsunarstöðinni í Sankti Pétursborg, sem minnkar losun af fosfóri í hafið um nær 533 tonn á ári, en hreinsun á fosfóri hefur þannig verið aukin mjög og gerð skilvirkari í samræmi við tilmæli Eystrasaltsnefndarinnar, bætir framkvæmdastjórinn, Magnus Rystedt við.

NEFCO fjarmagnaði samtals innan vatnsgeirans 61,5 miljónir rúmmetra af frárennslisvatni, sem minnkaði losun fosfórs í Eystrasalt um tæplega eitt þúsund tonn. Hægt er að bera þetta saman við að losun Finnlands af fosfóri árið 2006 var um það bil 3.500 tonn. NEFCO lagði fram skýrslu í fyrra um möguleikann á að setja á fót viðskipti með losun á fosfóri og köfnunarefni á Eystrasaltssvæðinu. Skýrslan var gerð að beiðni Eystrasaltsnefndarinnar HELCOM.

Minnkun koltvísýrings í þeim verkefnum sem NEFCO fjármagnaði að hluta í fyrra, nam tæplega 1,5 miljón tonna, sem samsvarar tæplega 90% af losun koltvísýrings frá ökutækjaumferðinni á Íslandi árið 2006. Þær fjárfestingar sem voru til stuðnings endurnýjanlegrar orku eða til bættrar orkunýtingar, minnkuðu orkunotkunina um 1.281.087 megawatttíma, sem samsvarar rafmagnsnotkun um 43.000 Íslendinga árið 2007.

Hinn nýi kolefnasjóður, NEFCO Carbon Fund (NeCF), sem var stofnaður í apríl í fyrra, dró til sín mun meira fjármagn, en gert hafði verið ráð fyrir. NeCF átti um áramótin fjármagn að upphæð samtals 77 miljónir Evra. Sjóðurinn veitir fjárfestum, sem eru bundnir af  Kyotosamkomulaginu, tækifæri til að fjárfesta í auknum losunarheimildum þannig að lokaniðurstaðan verði samt minni heildarlosun. Sjóðurinn veitir einnig slíka möguleika  eftir að Kyotósamkomulagið rennur út árið 2012. Sterk fjarhagsstaða Kolefnasjóðsins, NeCF, boðar gott fyrir framtíðina og sýnir að NEFCO nýtur mikils trausts meðal þeirra aðila sem taka þátt í viðskiptunum með losunarheimildir.

Það er mikilvægt að alþjóðlegar fjármögnunarstofnanir eins og NEFCO haldi stöðu sinni og tryggi útlán fjármagns til fyrirtækja og sveitafélaga í þeirri stöðu sem ríkir í dag, að æ fleiri viðskiptabankar hafa hægt um sig í Austur-Evrópu. Starfsemi NEFCO getur þá hjálpað verulega til við að brúa bilið, draga úr og mýkja áhrif fjarmálakreppunnar, bendir Magnus Rystedt á.

Norræna Umhverfisfjármögnunarfélagið NEFCO er alþjóðleg fjármálastofnun með aðsetur í Helsingfors í Finnlandi. NEFCO var stofnað árið 1990 af ríkisstjórnum Norðurlandanna.
Meginmarkmið NEFCO er að fjármagna fjármálalega raunhæf og arðsöm umhverfisverkefni á Norðurlöndunum og nærliggjandi svæðum þeirra í Rússlandi, Úkraínu, Hvíta-Rússlandi, Eistlandi, Lettlandi og Litháen. NEFCO hefur nú yfir að ráða sjóðum sem nema alls um 325 miljónum Evra.

Frekari upplýsingar:
Mikael Sjövall, Samskiptastjóri NEFCO, +358 50 3535 045
Karl-Johan Lehtinen, Umhverfissérfræðingur, prófessor í líffræði, NEFCO, +358 40 593 1239
Magnus Rystedt, Framkvæmdastjóri  NEFCO, +358 50 329 6224