Ársuppgjör NEFCO fyrir árið 2009 sýnir bætt umhverfisáhrif

Ársuppgjör Norræna Umhverfisfjármögnunarfélagsins, NEFCO, fyrir starfsemi þess árið 2009 sýnir mjög góðan árangur. Skýrsla félagsins yfir stöðu umhverfismála sýnir að þau verkefni sem NEFCO fjármagnaði í fyrra, minnkuðu enn frekar losun umhverfisskaðlega efna í andrúmsloftið samanborið við árið 2008. Fyrst og fremst eru það losun koltvísýrings, brennisteins, fosfórs og köfnunarefnis sem um ræðir.

Samanlögð bein eða óbein koltvísýringslosun í verkefnum sem NEFCO fjármagnaði árið 2009 var yfir 2,5 milljón tonn sem er álíka mikið og 65% af koltvísýringslosun Íslands árið 2007.
NEFCO samþykkti samtals 50 verkefni árið 2009 í gegnum fjárfestingarsjóð sinn og aðra sjóði í stýringu þess. Það verður að teljast gott með tilliti til þess að efnahagsástandið í þeim löndum sem NEFCO starfar aðallega í, Rússlandi og Úkraínu, er ennþá erfitt. Þau verkefni sem samþykkt voru eru meðal annars á sviði endurnýjunar í skolphreinskerfum, uppbyggingu á endurnýjanlegum orkugjöfum, orkunýtingu, bættri meðhöndlun sorps og hreinni framleiðslu.

Hagnaður félagsins eftir skatt á árinu 2009 var 14,7 milljón evrur eða um 2,6 milljarðar króna, sem að stórum hluta er tilkominn vegna sölu á hlutabréfum vegna fjárfestinga NEFCO. Fjármagn í stýringu NEFCO óx um 17% og stendur í um 383 milljónum evra.

- Þrátt fyrir alheimskreppu og minnkandi umsvif í Eystrasaltsríkjunum hefur NEFCO náð að tryggja sér stöðugt verkefnisflæði á sama tíma og mörg verkefni gefa af sér mikil umhverfisvæn áhrif sem hefur jákvæð áhrif á skýrslu okkar um stöðu umhverfismála, segir framkvæmdastjóri NEFCO, Magnus Rystedt.

Til markverðra tíðinda á árinu 2009 má nefna að í september skrifaði NEFCO undir samning við stjórnvöld í Úkraínu sem gerir NEFCO kleift að fjármagna verkefni með áherslu á orkunýtingu í fasteignum í eigu sveitarfélaga í Úkraínu. Í september var stofnað til verkefnisfjármögnunar, Nordic Climate Facility, ásamt Norræna þróunarsjóðnum (NDF). Þetta verkefni gerir NEFCO kleift að taka þátt í undirbúningi loftslagsverkefna í þróunarlöndum.

Kolefnasjóður, NEFCO (NeCF), sem var stofnaður árið 2008 jók fjármagn sitt um 24 milljónir evra í fyrra. Sjóðurinn fjárfesti meðal annars í losunarheimildum í tengslum við verkefni í vatnsveitum í Vietnam og orkýtingu í sementsiðnaði í Kína. Heildarfjármagn tveggja kolefnissjóða NEFCO er um 135 milljónir evra.

Norræna Umhverfisfjármögnunarfélagið, NEFCO, er alþjóðleg fjármálastofnun með aðsetur í Helsinki í Finnlandi. NEFCO var stofnað árið 1990 af ríkisstjórnum Norðurlandanna. Meginmarkmið NEFCO er að fjármagna arðsöm umhverfisverkefni í nærliggjandi svæðum Norðurlandanna, Rússlandi, Úkraínu, Hvíta-Rússlandi, Eistlandi, Lettlandi og Litháen. NEFCO hefur nú yfir að ráða sjóðum sem nema alls um 383 miljónum evra.

Frekari upplýsingar:
Magnus Rystedt, Framkvæmdastjóri  NEFCO, +358 50 329 6224
Karl-Johan Lehtinen, Umhverfissérfræðingur NEFCO, +358 40 593 1239
Mikael Sjövall, upplýsingafulltrúi NEFCO, +358 50 3535 045