NEFCO leggur áherslu á að vernda lífríki Eystrasalts og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda

Body: 

Fréttatilkynning, 8.4. 2008

Ársuppgjör Norræna umhverfisfjármögnunarfyrirtækisins (NEFCO) fyrir 2007 sýnir rekstrarafgang upp á 4,7 milljónir evra. Þetta er hagstæðasta rekstrarniðurstaða hjá NEFCO frá því að fyrirtækið var stofnað 1á árinu 1990. NEFCO samþykkti 59 ný umhverfisverkefni á liðnu ári. Verkefnin ná til orkusparnaðar, fjárfestinga í endurnýjanlegum orkugjöfum, meðferð og endurvinnslu á úrgangi og skolphreinsunar í Rússlandi, Úkraínu, Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Þá samþykkti NEFCO fjármögnun á sínu verkefni í Hvíta-Rússlandi.

- Til viðbótar við hagstæðan rekstur, sýnir ársuppgjörið að starfsemin skilaði ágætum árangri á liðnu ári. Þau verkefni sem við fjármögnum hafa skilað sér í orkusparnaði og að verulega hefur dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda - og okkur hefur líka tekist að draga úr losun fosfórs og köfnunarefna í Eystrasalt, segir Magnus Rystedt starfandi forstjóri NEFCO.

Vatnshreinsunarverkefni sem NEFCO fjármagnaði, að fullu eða að hluta til, drógu úr losun fosfórs um tæp 1000 tonn í fyrra og köfnunarefna um 3400 tonn. Í verkefnum NEFCO var losað 500 tonnum minna af köfnunarefni en á árinu 2006 og 80 tonnum minna af fosfóri. Það er í samræmi við nýja aðgerðaráætlun Eystrasaltsráðsins, HELCOM, fyrir Eystrasaltið sem NEFCO tók virkan þátt í á árinu. NEFCO fjármagnaði bæði skolphreinsun í einstökum sveitarfélögum og ýmis landbúnaðarverkefni. Samanlagt náðu verkefnin sem fjármögnuð voru að hreinsa sem nemur 60 milljónum rúmmetra af skolpvatni.

Í orkuverkefnum sem NEFCO fjármagnaði í fyrra tókst að draga úr losun koltvísýringsefna um meira en 2,2 milljónir tonna. Það er 40 prósenta samdáttur í losun frá árinu 2006, og nær til bæði beinna og óbeinna aðgerða. Til óbeinna aðgerða heyra t.d. fjárfestingar í framleiðslu á steinull og verkefni sem leiða til styttri flutningsleiða. NEFCO tókst einnig með fjármögnun að stuðla að minna mengandi framleiðslu þar sem einstök fyrirtæki tóku til við að nota endurnýjanlega orkugjafa í stað brennslueldsneytis. Með því tókst að minnka orkunotkun um sem nemur tæpum 1,3 milljónum megawatt-stundum á ári. Þá náðist góður árangur af minni vind- og vatnsvirkjunarframkvæmdum sem NEFCO studdi í Eistlandi, Lettlandi og Litháen.

Frá árinu 2003 hefur NEFCO stýrt kolefnisjönfunarsjóðnum Baltic Sea Region Testing Ground Facility. Vinna við að stofna nýjan kolefnisjöfnunarsjóð er þegar hafin.

Norræna Umhverfisfjármögnunarfyrirtækið NEFCO er alþjóðleg stofnun með aðsetur í Helsingfors. Það var stofnað af norrænu ríkjunum árið 1990. Meginmarkmið NEFCO er að fjármagna umhverfisverkefni sem draga úr framleiðslukostnaði á grannsvæðum Norðurlanda í Rússlandi, Úkraínu, Hvíta-Rússlandi, Eistlandi, Lettlandi og Litháen. NEFCO ræður yfir sjóðum sem nema um 250 milljónum evra.

Frekari upplýsingar:


Mikael Sjövall, Upplýsingastjóri, NEFCO, +358 50 3535 045

Karl-Johan Lehtinen, aðstoðarforstjóri, NEFCO, +358 40 593 1239

Magnus Rystedt, starfandi forstjóri , NEFCO, +358 50 329 6224

Sæktu ársskýrslu NEFCO í sænskri útgáfu á vefslóðinni:

http://www.nefco.org/publications/annual_report