Þetta er NEFCO

Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO) er alþjóðleg fjármálastofnun sem stofnuð var 1990 af norrænu ríkjunum fimm Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Hingað til hefur NEFCO fjármagnað fjölbreytileg umhverfisverkefni í Mið og Austur Evrópu þar með talið Rússland, Hvíta Rússland og Úkraína. Höfuðstöðvar NEFCO eru í Helsingfors og starfsemin beinist einkum að því að styðja við verkefni sem eru hagkvæm og til hagsbóta fyrir umhverfið á öllu svæðinu. NEFCO setur í forgang verkefni sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, bæta vistfræðilegt ástand Eystrasaltsins eða draga úr áhrifum eitraðra mengunarvalda.

NEFCO tekur sem stendur þátt í næstum 350 litlum og meðalstórum verkefnum á ýmsum sviðum, þar á meðal á sviði efna-, málm- og matvælaiðnaðar, landbúnaðar, vatnshreinsunar, rafveitna, þjónustu sveitarfélaga, sorpmeðferðar, umbóta á kjarnorkusviði, umhverfisstjórnunar og framleiðslu umhverfisbúnaðar.

NEFCO hefur mismunandi sjóði til að útvega það fjármagn sem þarf til að styðja við hin ýmsu verkefni. Helst þeirra eru Fjárfestingarsjóðurinn, Norræni umhverfisþróunarsjóðurinn, Sjóðurinn fyrir tilraunasvæðið (TGF), Kolefnissjóður NEFCO og Barents Hot Spots Facility. NEFCO hefur og umsjón með sjóðum annarra aðila sem leggja fé í umhverfisverkefni og má þar nefna framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og ríkisstjórnir Norðurlanda.

NEFCO verkefni eru alla jafna rekin í samstarfi við þann aðila sem "á" verkefnið. Lögð er áhersla á beinar fjárfestingar t.d. í samstarfsverkefnum opinberra aðila og einkageirans og fyrirtækjum í opinberri þjónustu. Í öllum verkefnum sem NEFCO styður verður að vera skynsamlegt jafnvægi á milli áhættu og hagnaðarvonar allra hagsmunaaðila. Markmiðið er að réttlátt og gegnsætt jafnvægi verði á milli fjárfestingarinnar og þeirra umhverfisbóta sem fást með henni. NEFCO stefnir að því að bjóða ætíð bestu fáanlega skilmála í þessu sambandi miðað við áhættu.

NEFCO hefur net samstarfsaðila og miðlar fjármagni frá þeim og fjármálastofnunum. NEFCO gerir einnig tvíhliða áætlanir um aðstoð í umhverfismálum.

 

  •